Intérieure ma tête

Bonjour mes Amis !!!

02.03.2008 12:36:25 / darrisig

HÆTTUR !!!

Já Darrinn er hættur að blogga !!!  (allavega í bili).

Þakka þeim sem hafa rambað hingað inn.

Verið góð við hvert annað.

Darri

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 10:57:42 / darrisig

Kolsýra

Jam og já, hér af vatni er allt fínt að frétta, geggjað mikill snjór LOKSINS !!! Held bara að það hafi síðast verið svona mikill snjór fyrsta veturinn okkar hérna á Laugarvatni og síðan eru liðin mörg ár....þeir greiddu í píku,,,, greiddu í... já ok ehmm gleymum okkur ekki í gleðinni. En ég var að fá einkunn loksins úr STjórnunaráfanganum (Konur og stjórnun) fékk 8,5 fyrir lokaritgerðina og fæ því væntanlega 8 í áfanganum - mjög sáttur og ehmm

Við í körfunni fórum til eyja um sl. helgi og spiluðum gegn sterku liði 'IBV... Grátlegt að segja frá því en við spiluðum okkar laaang bestu fyrstu 3 fjórðungana í vetur en skitum vægast sagt upp á bak í síðasta fjórðung og þeir náðu að jafna í framlengingu og höfðu betur í henni :s ömurlegt helv... en svona er þetta getum bara sjálfum okkur um kennt að klára þetta ekki með sóma eins og ég segi alveg grátlegt ! En við ákváðum nú gráta þetta ekki lengi og skelltum í okkur nokkru gleðiaukandi glundri og gerðum okkur glaðan dag sem eftir var...

Annars er leikur núna á sunnud. gegn liði sem heitir Þórir. Hann verður háður í Austurbergi nú síðan er BIKARÚRSTLITAleikur GEGN Þór Þorlákshöfn í höfninni næstkomandi þriðjudag og erum við bara orðnir spenntir fyrir því að takast á við það verkefni...

Annars er allt fínt að frétta héðan, krakkarnir ærslafullir eins og vanalega og ekkert betra en að knúsa þessar rófur.... Þorrablótsfundur hjá okkur Birtu í kvöld og það er nú bara gaman,,, vonandi að við stöndum undir væntingum á blótinu sjálfu allavega....

Læt hér staðar numið að sinni..... vonandi að íslenska landsliðið í handbolta rífi sig upp gegn Slóvökum næsta laug... jessúss hvað sóknin var hræðileg í gær gegn svíum... en svona er þetta bara berja sig saman fyrir næsta leik og taka hann með stæl...

ciao Darrinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 11:47:25 / darrisig

8. jan '08

Góðan og blessaðan daginn !!!

Þá er best að reyna að standa við stóru orðin og reyna að vera duglegur að bloggast hérna... Nú er maður svona rétt að ná aftur áttum eftir jólafríið, þar sem sólahringurinn var eitthvað farinn að snúast og gríðar mikið magn af reyktu kéti farið að segja til sín ;) En jú Drengurinn var nú reyndar asskoti seigur yfir hátíðarnar því hann hélt sér í þokkalegu ástandi yfir hátíðarnar með því að hreyfa sig reglulega - get ekki annað sagt að ég sé mjög ánægður með að hafa druzzlast út úr húsi til að skokka, hefði ekki boðið í allt átið án hreyfingar jísssúss...

Annars er kallinn nokkuð brattur bara, leikur gegn ÍBV um næstu helgi og bendir Darrinn því aðdáendum sínum að skoða aðra blögg síðu sem hann hefur yfirumsjón með - ....blog.central.is/laugdaelir - ef þeir hafa hug á að kynna sér stöðu mála og jaaahh fá upplýsingar um hvernig hægt sé að panta sér ferð með dallinum til Eyja. En semsagt hörku leikur við eitt af toppliðum deildarinnar og það verður barist til síðasta manns.

Nóg um það, hér á vatninu gengur allt sinn vana gang, kennsla, skúra, fjölskyldast, æfa, og já bara lifa.... Held að ég láti staðar numið að sinni, bið að heilsa ykkur esskunnar mína...

Ciao, Darrinn

p.s. Endilega kvittið fyrir ef þið rekið nefið hérna inn :) - alltaf gaman að því!


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 00:58:47 / darrisig

Gleðilega hátíð !!!

Komið þið sæl öllsömul !!!

 Ég ætlaði nú bara að óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar !!!

Vil benda ykkur á að á nýju ári mun ég byrja að blogga sem aldrei fyrr aftur eftir nokkuð langa pásu... Þessa ákvörðun hef ég tekið af yfirlögðuráði vegna fjölda áskoranna !!!!

kv. Darrinn


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 23:23:51 / darrisig

Hooooeee

Yes... vetrarfrí framundan í skólanum.........

Við unnum góðan sigur á liði KKF Þóri síðasta mánudag í körfunni. reyndar má segja að darrinn hafi verið hinn rólegasti þannig séð hehe var ekki alveg rétt stemmdur en jahh næst er leikur gegn liðinu Móstra frá Stykkishólmi og það verður hörku leikur.

Hér á Laugarvatni er búið að rigna held ég bara í allt haust.... sennilega 2-3 dagar í mesta lagi sem hafa verið svona ekta heiður himinn og frost.... Maður er orðinn frekar þreyttur á þessu verð ég að segja... og væri alveg til í að fara að fá smá snjó !!!!

Allavega læt þetta stutta innlegg duga að sinni....

kv. Mr-D


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 17:16:33 / darrisig

craaazzzyness in the brain house

jámmm góðan daginn hér enn og aftur.....

 Allt gott að frétta úr sveitinni....

vill bara benda aðdáendum darrans á að það er æfingaleikur gegn hrunasveppum á Flúðum í kvöld kl 20:00 að staðartíma og eigum við Laugdælir harm að hefna síðan í síðustu viku.... Um er að ræða æfingaleik svo það er nú samt ekkert 100 í hættunni þótt við lútum í gras... en að sjálfsögðu viljum við allir sigra.... sjáum svo til hvernig fer... en hrunasveppir hafa styrkt lið sitt töluvert mikið og fengið nokkra mjög svo ágætisleikmenn til sín.... ehmm blaðamannafundur verður eftir leikinn í einhverju af sveppahúsunum þarna og verður boðið upp á ýmsar tegundir af sveppum og límtréssafa.... svo eitthvað sé nefnt :haha:

 

allavega læt þetta duga að sinni... áfram Laugdælir

 ciao Darrinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 17:08:11 / darrisig

ÖRFRÉTT

já sæl verið þið !!!

 Örstutt færsla fyrir æsta aðdáendur Darrans...

Æfingaleikur gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld.... Blaðamannfundur eftir leikinn verður síðan haldinn á Rauðahúsinu á Þ.höfninni og er víst að það munu færri komast að en vilja...   Úrslit verða kynnt síðar.... þ.e. eftir leikinn ............ MÚAHAHAHAHAHHAHAHAHA :D

Annars er búið að vera úrhellis rigning hérna á vatninu  undanfarna daga... og í gær var svona óheppnis dagur hjá mér.... Eldaði mér dýrindis ,,hring" hrossabjúgu og þegar ég stakk í hana sprakk hún í tætlur og gusaðist fitan út um allt eldhús og yfir mig allan.... skemmdi helv.. fötin og alles.... var ekki neitt voða sáttur svo vægt sé til orða tekið.... skúraði og skrúbbaði allt heila draslið og gerði við uppþvottavélina.... sem bilaði strax aftur hehehe þá var ég enn sáttari.... nú svo missti ég af æfingu líka, svo sem ekkert við því að gera og allskonar svona smá óheppni út um allt... held að þetta hafi svo smitast yfir í Mánann örlítið í morgun því hann var svona aldeilis hress og allt lék í lindi þangað til hann ætlaði að fara út..... þá stangaði hann svoleiðis hurðina og fékk þetta fína horn.... greyið... hann var heldur ekki sáttur eftir það....

en jebbs læt þetta duga í bili elskurnar

elskið friðinn og strjúkið kviðinn ...jahh eða eitthvað annað 8|

Darrinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 22:26:51 / darrisig

Rulav !!!!

Já sælir kæru landsmenn nær og fjær......

Ég virðirst heldurBETUR vera að síga fram úr henni Berry í bloggkeppni dauðans og meira að segja með því að vera nokkuð rólegur barasta :haha:

Annars er allt fínt að frétta... er einstæður faðir þessa dagana, en frúin kemur ekki heim fyrr en næsta föstud...

Djísss hvað er að gerast með mína menn í handboltanum ... isss búnir að tapa öllum 3 fyrstu leikjunum.... er nú reyndar ekki búinn að fylgjast grannt með gangi mála en mér sýnist að þeir þurfi nú að fara að rífa sig upp og sýna hvað í alvöru VALSMÖNNUM býr...

Annars er nú loks komið á hreint hvernig 2 deildin í körfunni mun líta út... og erum við Laugdælir í riðli með Íbv, Móstra frá Snæfellsnesi, Álftanesi og svo eru tvö lið sem spila í Austurbergi í rvk... þau eru KKF Þórir og Umf. Glói... tvöföld umferð og allt að gerast held ég barasta.... Við ætlum svo að taka æfingaleik við Þór Þorlákshöfn sem eru í 1.deild og svo líka nokkra æfingaleiki við Hrunasveppina....

jemms ætla að ljúka þessu í bili en þið heyrið frá mér bráðlega

þangað til næst

D-Man


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 13:48:58 / darrisig

nrójtsuðís

Góðan daginn hér !!!

 Aldeilis sem maður er sprækur í blogginu þessa dagana.... það eru bara færslur á hverjum einasta degi hehe 8) Brjálað rok í dag á vatninu og ekkert eins kósý en að kúra bara undir sæng og hlusta á rokið úti....

Fengum beruna litlu í heimsókn í gær í mat og spil.... það er nú skemmst frá því að segja að ég sigraði flest spilin með yfirburðum og sýndi fádæma góða spilamennsku  á öllum vígstöðum... 8|

Var að skoða myndir af útivistarferðinni á lokaárinu í íkí og jeminn hvað mig langar aftur.... dísess... held að við maður þurfi að fara að gera eitthvað í því og fara í góða jeppa-vetrar-ferð einhverstaðar upp á hálendinu...

jebbs ætla nú ekki að hafa þetta lengra að sinni.... er annars bara gríðar hress

Áfram öll lið í rauðu.... Liverpool. Chicago Bulls, Valur, Ferrari og Laugdælir

ciao bella

Darrinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 10:06:45 / darrisig

Bloggster

jaaaah viti menn nú er ég barasta kominn í blog-keppni við Hally Berry sjálfa.... svo nú verður maður að standa sig...

ehmm sl. fimmtudag fór ég ásamt frúnni og Beru littlu á kennaraþing suðurlands... og var það barasta fínasta skemmtun... Á föstudeginum fór ég svo á fyrirlestur um stærðfræði eitthvað og var það bara ágætt líka... Síðan seinna um daginn kom TRST Jóns (Trausti) og fjölskylda í síðbúið kaffiboð og var mjög gaman að sjá framan í þau... enda allt of langt síðan við sáum þau öll sömul síðast... meira að segja búið að bætast í mannskapinn :D

Næsta fimmtudag verður svo æfingaleikur hjá okkur í körfunni við Þór í Þorlákshöfn og eru aðdáendur Darrans beðnir um að sýna biðlund eftir miðum... en kappinn mun hafa ákveðið að ágóði keyptra miða muni renna óskiptir til góðgerðamála....                        

Allavega læt þetta duga í bili....

heyrumst síðar....................................og munið svo að vera góð við hvert annað:............

Darrinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 22:36:55 / darrisig

Capri Italia

jú, sæl verið þið nú öllusömul....

Darrinn er að reyna að rífa sig upp í blogginu eftir frekar dræma frammistöðu undanfarna mánuði... 8| Nú er maður bara að reyna að koma sér í sómasamlegt form og er kominn á fullt í basketinn.... 3 æfingar í viku og svo smásaman ætla ég að reyna að fara að mæta á auka styrktaræfingar með þessu...     ennnn nóg um það !!!

Er farinn að hlakka til 13. okt. þar sem við skötuhjúin ætlum að fara að sjá og hlusta á meistara MEgas og Senuþjófana í höllinni, vonast eftir gargandi snilld þar allavega.... Á morgun er svo kennaraþing suðurlands á flúðum og er það að á stefnuskránni að skunda þangað og tjaaa ef maður verður í stuði um helgina ... að kíkja á réttir og jafnvel réttarball á Hellunni góðu------

jæja ætla að láta þetta nægja í bili.... maður þarf að reyna að slaka á eftir ágætis basketara í kvöld...

Heyrumst síður elskurnar

ciao Darri


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 10:25:32 / darrisig

Central

já komið þið sæl öll sömul nær og fjær... til sjávar og sveitar... hvar sem þið eruð !

 Darrinn er bara svona gríðarhress í dag, loksins hætt að rigna og bara hið prýðilegasta veður úti við. Reyndar verður að segjast að maður sé farinn að finna haustlykt í lofti...

Karfan hjá Laugdælum er komin á fullt swing og það er æfingaleikur næsta mánudag út á Álftanesi og verð ég að biðja aðdáendur darrans um að leggja tímanlega af stað því það má búast við umferðarteppu á þessum tíma dagsins.... nánar um basketinn á Laugdælasíðunni.

 Kennslan er komin á fullt skrið og maður er búinn að ná áttum og venjast innanhúsloftinu á ný eftir að hafa verið nánast úti í allt sumar - í tjaldi sko meina ég. Maður er búinn að fá ógrynni af emailum frá frakkalingum með ábyggilega trilljón myndum og það er nú bara þræl gaman... spurning hvort maður birti ekki einhverntíman einhverjar vel valdar myndir hér á þessari síðu, við tækifæri.

Nú svo um helgina er út að borða og í leikhús með frúnni... ekki slæmt það!

 Læt þetta duga í bili esskunar mínar hehehe

 over & out

Darri from Waterlake in the Bluforrestsettlement of Iceland  jájá !


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 18:31:26 / darrisig

Kominn heim af fjöllum

Jám jæja þá er maður kominn heim af fjöllum. Fór í 3 ferðir í sumar og endaði á að fara skemmtilega ferð norður Gæsavatnaleið... kom m.a. við í Öskju, Jökulsárgljúfri, Mývatni og Hveravöllum. Þetta gekk allt saman voða vel.

Nú svo er bara kennsla tekin við og ,,hefðbundið líferni" að komast á. Næstu helgi þá er fjölskyldumót hjá frúnni og svo helgina þar á eftir er ,,Tarfamót" á gólfvellinum á Flúðum svo það er nóg að gera á næstunni.

jæja læt þetta duga í bili.... er alveg andlaus í þessu bloggi hehe vonandi að maður fari að taka sig á og rífa upp um sig buxurnar og gera eitthvað að viti hérna....

 

Heyrumst síðar

Ciao !  


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 13:48:56 / darrisig

ALORS MES AMIS !!!

Salut salut

Var að klára eina ferð með frakkalingana - sem gekk svona voða vel í alla staði enda fengum við líka geggjað veður nánast allan tímann. Ég lofaði þeim að skrifa eitthvað hérna smá á frönsku svo hér kemur það.... vill samt láta ykkur vita að ég er gjörsamlega orðinn handónýtur að skrifa á frönsku hehe

 

Bon Je veux vous remerci une voyage meveilleux. J'éspair que votre sejour en Islande été pas mal :) . Nous avons bien fait Landmannalaugar, Skaftafell et Vík. J'éspair que tout va bien chez vous tous et votre retour été bien. Si vous voulez écrire ici vous devez tappe ..skrifa sína skoðun hérna.. au desous ce que j'écrire ou bien ..gestabók..

Bisous !!!

 

Jájá og eins og fyrri daginn má ekki gagnrýna mína snilldar stafsetningu hérna, hehe sama á hvaða tungumáli maður er að tjá sig ;)

læt þetta gott heita í bili.... fer aftur í ferð 1 ágúst og verð þá til 23 ágúst á fjöllum nánast non stop

verið góð hvert við annað kveðja D


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 22:42:27 / darrisig

Evrovision

Jáhá komið þið öll sömul blessuð og sæl.... lömbin mín nær og fjær.... nei er ekki alveg hættur að blogga... en búinn að vera í bloggleti dauðans svei mér þá.... reyndar búið að vera slatti að gera hérna á þessum bæ.... Birta í lokaritgerð og núna í prófum. Ég búinn að vera í verkefnavinnu og heimaprófi... vona bara að þetta sleppi hehe...

 Annars var ég að horfa á forkeppni Evróvision... Arnarinn kom bara í mat og alles... mjög fínt bara... Ég ætla ekki að fara að kvarta yfir úrstlitum þessarar keppni því það var að sjálfsögðu vitað mál hvernig þetta myndi ca fara.... Það versta hins vegar er að maður er svo vitlaus að eyða heilu kvöldi fyrir framan þetta og hlusta á 27 ömurleg lög (ég meina það er ekkert af þessu lagi sem maður setur inn á I-podinn eða slíkt !!!) vitandi það að íslendingar komast ekki áfram haha semsagt maður píndi sig í nokkra klukkutíma yfir drep leiðinlegu sjónvarps- og hlustunarefni algjörlega til einskis, vitandi fyrirfram að þetta væri allt saman til einskis. Hversu vitlaus getur maður eiginlega verið :) en svona er þetta. Mér persónulega finnst Íslenska lagið ekki sérstaklega gott en Eiki var samt bara flottur þarna... og ég þori að veðja að við Íslendingar munum aldrei komast upp úr forkepppninni með óbreyttu fyrirkomulagi...

jájá annars er bara gaman að sumarið sé að koma... fullt af ferðum á fjöll framundan svo það er bara stemmning...

Læt þetta duga í bili en já að lokum bið ég alla um að hvetja Búlls geng Detroit í úrstl..keppninni í NBA ekki veitir AF !!!!

Ciao ciao Darrinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Félagastarfsemi í KHÍ
Dagsetning
10. mars 2010
Leitarbox